Kleppurinn hennar Ásu
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 október
19.09.2008 02:26:12 / asa84

58,5kg farin...

fyrirgefiði hvað ég skrifi sjaldan herna....ég gleymi því bara...ég er með myspace síðu og facebook...addið mer bara....

annars er bara allt gott að fretta af mer...ég er að missa kilo eftir kilo....endilega bara verið dugleg að ýta eftir mer að skrifa herna....

heyrumst....

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 17:16:35 / asa84

jæja smá fréttir!

hæhæ það er allt það finasta að fretta af mer...ég er buin að missa 50kg frá því í júní í fyrra....vá næstum heil manneskja...mér liður misvel í maganum...ég þarf að passa mig rosalega vel því ég fæ í magann á mörgu...

en allavega er allt fina að fretta hérna í fjölskyldunni minni...erla er á fullu í sjúkraþjálfun og vinna í kaffitár og svo er hun kom á fast....
mamma og pabbi eru alltaf á einhverju flakki með fellihýsið sitt....hehehe
þannig að ég er sett í það að vökva og passa húsin...

vonandi fer að styttast að ég fari til útlanda...mig dauðlangar...en spurning hvort ég hafi efni á því þar sem ég er að fara að læra að gera gervineglur í haust...
en allavega

þá bið ég að heilsa...

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2008 06:16:19 / asa84

jæja fréttir!!!

hmm ég held að það sé komin tima að ég skrifi eikkað herna....

síðan ég fór í aðgerðina er ég buin að missa um 20kg...eða frá því í maí í fyrra eru farin yfir 40kg...sem er mjög gott...ég er buin að vera í endurkomuprógrami nuna á reykjalundi...það er æði...á viku eftir...

svo er það sumarið er komið og hvert á maður að fara....
er að spá í humarhátíðina fyrstu helgina í júlí....ég er lika að spá að fara hringinn með gustu vinkonu í julí...
ég er buin að eignast svo mikið af vinum...þau eru æði...ég er farin að fá athygli frá karlmönnum og ekki litla...
ég höndla það alveg...eða ég vona það...hehe....
ég er svo mikill player...ég er ekkert að fara í samband nuna sko...ég er að leika mer...
loksins get ég gert eikkað fyrir mig....ég er að verða fatalaus þannig að ég þarf að fara að laga fataskápinn...ég fæ lánað hjá muttu...

jæja ég ætla að ljóstra leyndarmálinu minu nuna...
þyngdinn min...þegar ég var þyngdst í maí í fyrra var ég 165,5 en nuna er ég 122,4...ég er hætt að vera feimin með þyngdina mina...ég stefni á að vera komin í tveggja stafa tölu nuna um jólin...og svo í kjörþyngd eða um 70-80 kg...ég held að það sé fin þyngd bara...
ég hef ekki verið svona létt lengi eða frá því ég var í 9bekk eða eikkað...
en jæja þa vitið þið það...hehe...en jæja...

ég kveð í bili...bæbæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 23:49:10 / asa84

Mikið að gera hjá mér!!!!

hæhæ sorry að ég hafi ekki neitt skrifað á þessa blessuðu síðu mina....
jams það er komin hvað langur tíma síðan ég var í aðgerðinni 6vikur og 3dagar og ég er buin að missa 15,9kg...:d ég er ógeðslega ánægð...ég er farin að borða svona næstum allt...en ég borða lítið en oft...ég er að verða samt brjáluð hvað fötin min verða fljót og stór á mig...samt er það gaman...hehe...ég þarf að taka til í fataskápnum minum og skella mer til útlanda...

en jams svona annað að frétta...uuuuu ég er æðislega vini...ég er alltaf að kynnast nýju fólki gegnum einkamal.is....ég er í skemmtinefnd og við erum að fara að halda árshátíð 7juni á hótel örk...já þetta er ekki bara einhver spjallsíða eins og allir halda...við erum að hittast oft...
ég kynntist einmitt einum æðislegur strák þar og er að hitta hann aðeins...hann er voða góður...er ekki viss hvort eikkað verði ur því en það kemur í ljós seinna...

jæja annars bið ég bara að heilsa ykkur í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 14:18:24 / asa84

Aðgerðin gekk vel...

hæhæ jæja þá er ég komin heim aftur...ég kom heim í gær reyndar en ég er bara svo þreytt að ég get ekki setið lengi í einu...ég helt að maður ætti að hvílast á spítala en það var ekki þannig þar sem maður var vakin til að mæla mann blóðþrýsting, hita og súrefnismetun kl. 5 á nóttinni :s
En já aðgerðin gekk bara vel svo ég viti til...aðgerðin min var í beinni útsendingu á hótel hilton...það var ráðstefna...
daginn byrjaði ekki vel þegar ég var komin á spítalann...rúmið sem ég fékk var bilað...það var ekki hægt að hækka það upp þannig að ég steig sjálf á skurðborðið...hehe það var gaman...það var fullt af myndavélum inná skurðstofunni...
við vorum tvær sem voru sýndar...ég er buin að vera með pinu verki undanfarið útaf lofti...það var dælt svo miklu lofti í mig...það er ennþá loft í maganum á mér þó að þetta sé pínulítill magi...ég held að þetta sé á við stærð egg...það gengur hægt að borða það sem ég á að borða...en ég verð að vera dugleg...mamma ætlar að hjálpa mér mikið sem betur fer...
en jæja ég held að þetta sé nóg í bili...
Ása gatasigti

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:24:29 / asa84

Aðgerð á laugardaginn 12.apríl!!

jæja fólk...þá er ég buin að fá staðfesta dagsetningu á aðgerðinni...ég fer 12 ekki 11...
min aðgerð verður tekin upp vegna læknaráðstefnu sem verður úti...þeir spurði mig hvort ég yrði til í það og ég sagði auðvitað væri ég til í það...þannig að min aðgerð verður tekin upp þó að andlitið mitt sjáist ekki þá hjálpar þeim með að kenna fleirum þannig að um að gera...
en ég mun blogga um leið og ég kem heim til að segja ykkur hvernig gekk...ég mun líklegast koma heim á mánudaginn...ef allt gengur vel...þannig að fólk endilega að hugsa um mig á laugardaginn...gefa mér góða strauma...ég er að stressast upp pinu nuna...en þetta lagast...
kv.ása

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 16:00:11 / asa84

Hjáveituaðgerð 11apríl!

hæhæ allir saman...hvað segiði gott?
jæja góðar fréttir...ég er að fara í hjáveituaðgerðina 11apríl :haha:
vá ég er svo spennt...ágústa vinkona fer 10apríl...ég er buin að missa um 20kg frá því í júní í fyrra...sem er mjög gott eða svo segiru Ludvig á Reykjalundi...hann er ánægður með árangurinn og ég líka enda líður mér miklu betur...ég er hamingjusöm með lífið eins og það er...ég á góða fjölskyldu og vini...það ljómar af mér hamingja eða svo segir fólk hehe bara betra enda núna þá lokka ég karlmenn svo að mér að ég get valið ;)
bara betra...ég er að leika mér með lífið nuna...ég er ekki tilbúin að setjast niður með einhverjum karlasna hehe...en mig langaði bara að segja ykkur þessar æðislegu fréttir...
annars er allt gott að frétta af klakanum...
kv. ása hamingjusama 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 14:29:08 / asa84

Svakalega er lífið skrítið...

hæhæ vá hvað lífið er skrítið og hálf ömurlegt...ég var orðin geðveikt happy og eikkað en hvað gerist...þá er hann ekki tilbúin í samband...alveg dæmigert...
ég veit orðið ekki neitt í mínum haus...ju ég veit það að ég er ennþá ógeðslega hrifin af honum...æji þetta er flókin andskoti þessir karlmenn...:cry:

aðrar fréttir eru þær að ég hringdi áðan uppá landspítala til að ath með umsóknina mína til að fara í hjáveituaðgerðina og hun er komin...og ég er á biðlista bleble...það er samt ekki vitað hvenær næsta hol verður...hvort það verði í mars eða apríl...
en það kemur í ljós...:$


kv. ása í ástarsorg....



» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:18:35 / asa84

lífið er æði!

hæhæ úff hvað ég er happy nuna...

ég var að kynnast æðislegasta strák sem til er...hann heitir diddi, hann er 31 árs, og býr upp á akranesi...hann á 3börn. æji hann er svo mikið æði...ég sé ekki sólana fyrir honum...hann er svo góður við mig....ég fór að hitta hann fyrst á mánudaginn síðasta og þegar ég sá hann þá fékk ég sting í hjartað úff þetta var góður stingur...og nuna er miðvikudagurinn og ég var að koma heim...ég var ekki alveg að vilja að fara frá honum...en hann ætlaði að vera með krakkana og hann er ekki tilbuin að kynna þeim fyrir mér sem er skiljanlegt...

ég hitti hann aftur í næstu viku og ég get ekki beðið...

aðrar fréttir eru það að ég fór á reykjalund á mánudaginn og ég má fara í aðgerðina af þeirra hálfu...ég er buin að missa það sem ég þarf að missa til að fara í hana...en björn skurðlæknir þarf að dæma það næst...hlakka til að fá að vita það....

en jæja ætla ekki að hafa þetta lengra...

með kveðju

Ása þessi yfir sig hrifna...


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 01:39:22 / asa84

Úff ég er gömul og götótt!!

hæhæ hvað sagja bændur gott í dag?

vá það er margt búið að gerast hjá mér...

11.janúar þá vakna ég kl.4 um nóttina með mikla verki í maganum...þeir voru í kringum naflann og hægra megin... og þeir voru svo miklir að ég grét af kvölum...svo um hálf 6 þá gafst ég upp og vakti mömmu og pabba...þeim stóð ekki á sama..þannig um 7leytið hringdi pabbi uppá heilsugæslu og talaði þar við lækni á vakt og hann sagði að þessir verkir væru botnlangalegir...og það væri betra fyrir mig að koma á vaktina kl.8

mamma fór með mig því pabbi þurfti að fara með Erlu í bæinn til læknis...Jón sem tók á móti erlu þegar hun veiktist tók á móti mér...hann skoðaði mig bak og fyrir...tók prufur og rannsakaði...honum fannst þetta botnlangalegt þannig að hann hringdi í skurðlækni og hann vildi að ég færi á bráðamóttökuna á hringbraut...jæja mamma nu þarft þú að keyra mig í bæinn sagði ég því ég er að fara í bæinn og líklegast í aðgerð sagði ég við hana og það var um hádegi....þannig að við urðum að fara á mínum bíl...mamma keyrði mig á bráðamóttöku...þar var ég lögð inn til rannsókna...pabbi og Erla hitti okkur svo...ég var allavegana skoðuð og það var ekki gott sumt af því...einnig er ég send uppá kvennó til að fyrirbyggja að þetta sé ekki eikkað svoleiðis...svo loksins um 15 þá er ég send uppá skurðdeild...þar varð ég bara að bíða...mamma og pabbi biðu með mér...en vá hvað ég var orðin þreytt því ég var ekkert buin að sofa..svo um 19 þá var sagt mér að ég væri á leiðinni niður á skurðstofu..mamma og pabbi fóru til Guðlaugar systir pabba og biðu þar...svo fór ég í aðgerð um 20..hehe það var frekar skrítið en ég var ekkert hrædd, mér fannst það frekar óvenjulegt en ég vissi að mér er gætt...brósi passar mig...það var sett einhver gríma framan í mig og mér sagt að anda djúpt og ég man eftir að hafa andað vel svona 5 sinnum og ég man ekki meira...fyrr en ég er vakin eftir aðgerðina og vá það var sko erfitt..það var ekki dropi af munnvatni í munninum á mér...mér var gefið vatn, ég man eftir að mamma hringdi í vöknun og ég talaði eikkað við hana...hun sagði mér að þau ætluðu heim en koma á daginn eftir...hun spurði mig hvort ég var með verki og ég sagði já...ég man voða lítið...það var erfitt að vakna...svo um 23 þá var ég keyrð uppí herbergi uppá deild...þar fékk ég morfín því ég var með verki..svo sofnaði ég bara aftur..svo um 4leytið vaknaði ég..mér fannst ég vera buin að sofa heillengi..ég hringi bjöllunni og bið um hjálp að standa upp því ég þurfti að fara að wc...ég fékk svo meira morfín þegar ég lagðist aftur því ég var með verki...hehe ég elska morfín..það er svo gott...Ég er vakin um hálf 9 í morgunverð, jippi matur..ég var náttúrulega ekki buin að borða síðan fimmtudagskvöldið...svo fór ég aftur að sofa...ég var roslega þreytt...síðan um hádegi þá kom læknirinn og sagði mér að aðgerðin gekk vel en ég fengi ekki að fara í hjáveituaðgerðina því það er of mikil fita ennþá á lifrinni..en þetta var sá sem gerir þær aðgerðir...ég varð bara að vera dugleg...Svo um 14 þá fékk ég að fara heim..pabbi sótti mig..ég fékk sterkar verkjatöflur með mér og ég má ekki gera neitt í 2vikur..og ekki einu sinni í heitan pott..andskotinn ég sem var buin að panta sumarbústað og buin að borga hann..en sem betur fer fékk ég að fresta því..Ég varð að sofa í sófanum eða hægindastólnum inní stofu því ég gat ekki reist mig upp..ég fékk ógeðslega verki í skrokkinn þetta var eins og strengi og það eins og ég hafi verið að lyfta tonni og það mörgum sinnum en svo þegar dagarnir liðu þá var það betra...ég þurfti að fara nokkrum sinnum á slysó útaf skurðnum...það vall svo úr honum..en það er að lagast...

svo átti ég audda afmæli 18jan vá ég er gömul...ég er 24ra..það var þorramataveisla hérna en ég fékk hangikjöt í staðinn það var gott..ég hélt ekki uppá afmælið mitt...En ég hef það fína bara nuna...það vellur pínu ennþá úr naflanum en það er að lagast...það eru nuna 2vikur frá því ég fór í þetta...ég hef bara ekki nennt að skrifa blogg en vá þetta er orðið langt blogg...Það sem er næst framundan er að halda áfram að ná sér..svo er að fara að hreyfa sér en það er ekki buið að vera skemmtilegt veður undafarið...

svo í byrjun feb þá kemur Anna mín heim...vá hlakka svo til er að deyja...

En jæja ég held að þetta sé komið nóg...Hehe takk fyrir að nenna að lesa þetta...endilega að skrifa comment

Með kveðju Ása götótta... 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 17:45:36 / asa84

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár!

Takk fyrir mig og mína...jæja jólin búin...ég hafði það æðislegt um jólin í fangi fjölskyldunar...

Ég fékk margar gjafir...ég fékk t.d. úr, 2hálsmen, eyrnalokka, náttföt, jogging galla, peysu, ilmvatn og shower gel frá puma, diskinn með Pál Óskari, bíómiða, 2 sokka, 2 sleikjóa, gjafabréf í smáralindinni og hehe já 2mandarínur og peru frá Erlu systir því henni vantaði að þyngja pakkann og það má ekki gefa mér nammi þar sem ég er að breyta um lífstíl....

Mér gengur bara ágætlega...ég á það samt ennþá til að gleyma mér í óvelkomnum hugsunum...ég er að reyna að henda þeim út...en ég er samt buin að vera stolt af mér því annan í jólum fór ég út að labba...bróðir mömmu átti afmæli þannig að ég labbaði þangað í kaffi....og svo í gær fór ég að labba líka en það er búið að vera svo mikill snjór og kuldi að það er svo erfitt...ég er samt buin að vera dugleg að passa mig að borða ekki mikið nammi....

Jæja svo er það þetta venjulega milli jóla og nýárs....pabbi og erla eru alltaf inní húsi sambandi við flueldana...mamma er að baka fyrir afmælið hans pabba...hann er að verða 45 ára á morgun 29des....mamma var 45 ára 2sept en erla var þá inná spítala þannig að hun hélt ekki uppá það...þau voru eikkað að spá í að halda það saman á morgun....þau eru að bjóða fólki í kaffi og tertur...

en jæja svo verð ég 24 ára í janúar..hehe  ég ætlaði að bjóða í bústað en ég er hætt við það...þessar svokölluðu vínkonur hafa ekki haft samband við mann nema þegar þeim vantar eikkað...ég læt ekki koma svoleiðis fram við mig...

en jæja...ég held að þetta sé nóg í bili....bið að heilsa í bíli....

Ása gamla


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 21:37:00 / asa84

Jæja þá er það búið í bili!!!

hæhæ hvað segir fólkið gott???

ég segi það frábærasta...mér líður svo vel loksins....andlega þar að segja og líkamlega líka....jæja þá er ég útskrifuð af Reykjalundi eða allavega í bili....þessar 5 vikur vorum fljótar að líða....ég missti 5,7% fitu sem er gott eða 14,2 kg það er reyndar frá því 16 maí á þessu ári...en á þessum 5 vikum missti ég 4,2kg....ég er bara mjög ánægð með það....

ég fæ ekki að fara í aðgerð fyrr en fyrsta lagi í feb...en ég þarf að vinna meira andlega áður....þannig að ég verð bara að halda þessu áfram....

en ef þið eruð með spurningar þá endilega að spyrja mig....

en annars læt ég þetta duga í bili....

hey einar æði frétta....Anna mín er að koma heim í feb :haha:

kveðja Ása


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 15:51:35 / asa84

Þetta er alveg að verða búið....

hæhæ ég ætla að hafa þetta stutt...

það gengur bara vel hjá mér....ég er buin með 4 vikur og síðasta er að fara að byrja....

samtals er ég búin að missa um 15kg frá því í júní....ég fer í aðgerðina líklegast eftir áramót einhvern tímann en ég segi meira frá því þegar ég útskrifast næsta föstudag 21des...

en við heyrumst verið dugleg að skrifa komment eða í gestó....

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:10:41 / asa84

Jæja önnur vikan er búin á Reykjalundi...

hæhæ jams önnur vikan er búin...þetta gengur vel bara hjá mér...

þetta er púl...maður er sveittur allan daginn...en þetta er samt gaman...hópurinn minn nær rosalega vel saman...við erum öll að svipuðum aldri þannig að það er fínt sko....

en jæja þegar ég kom heim á föstudaginn þá fór ég strax í það að þvo þvottinn minn og slaka svo vel á...ég nennti ekki að gera neitt...en helena dró mig á rúntinn þannig að það var fínt...hun lúllaði hjá mér...það er fínt hehe því við vorum töluðum mikið en ég sofnaði fyrr því ég var svo þreytt...

en á laugardeginum var ég löt en hehe ég fékk heimsókn frá vini mínum...úff þessi stra´kur er yndislegur...

en annars gerði ég ekki mikið...jæja ég held að þetta sé nóg í bili...

heyrumst

kv.Ása sveitta


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 04:27:25 / asa84

hæhæ

sæl veriði...jæja ég er búin að vera eina viku á Reykjalundi og mér líst bara mjög vel á þetta allt saman...ég er í O2..það eru tveir hópar í gangi í einu...helmingurinn af hópnum mínum eru frá Suðurnesjunum...við náum rosalega vel saman...við erum öll svona á svipuðum aldri en ég er auðvitað lang yngst í hópnum...

Annars er allt gott að frétta nema það að síminn minn er að byrja að klikka og þetta er ekki eins árs sími...hann er í ábygg þannig að ég fer með hann á mánudaginn í viðgerð...

Í gær þá fór ég að hitta strák sem ég er búin að vera að taka við í 5 ár æji þetta er voða skrítið...við kynntumst árið 2002 held ég...svo þegar ég fór á fast þá hættum við að tala saman og svo líka þegar ég fékk mér nýjan síma þá datt númerið hans út úr símanum...svo allt í einu fórum við að tala aftur saman núna fyrir svona 3vikum eða eikkað...svo í gær loksins þá hitti ég hann og úlalala hann er algjört nammi...hann er sveitastrákur mmm það er mikill plús hjá mér þar sem ég var mikið í sveitinni þegar ég var yngri....svo næstu helgi þá verð ég og Erla systir einar heima því gamla settið er að fara í bústað þá ætla ég að bjóða honum til mín....og vona að hann komi....því ég verð að játa eitt...ég er að verða frekar hrifinn...ég veit að það er skrítið þar sem ég er bara búin að hitta hann einu sinni en svona er lífið...honum líst vel á mig eða allavega sagði hann það en það mun koma í ljós....

Já svo áðan þá fórum ég með helenu, brynju og önnu til óttars í partý í grindavík...við vorum að hita upp því við fórum á palla á trix úff það var geggjað en ég er bara svo þreytt eftir daginn í dag því ég fór með mömmu og lilju í bæinn í búðaráp...ekki mitt uppáhald en ég græddi því mamma keypti föt á mig...eða lánaði mér fyrir þeim...það á að vera jólafötin mín....

en jæja ég held að þetta sé komið nóg í bili...ég skal alltaf skrifa blogg um helgar þegar ég kem heim svo þið getið fylgst með....

með kveðju

Ása þreytta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 23771
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan